Ég þarf að panta eitt og annað í bílinn hjá mér og hef verið að spá í að gera það að utan, tb eiga ekki til þessa hluti og B&L er ekki í myndinni.
Er sniðugra að versla frá UK eða DE eða usa? Hvaða gjöld eru það sem leggjast ofan á kostnaðinn úti? Vsk, sendingarkostnaður og hve mikill tollur?
Svo er ég að spá í hvaða verslunum menn hafa reynslu af.
http://pelicanparts.com/ lítur frekar vel út og þeir virðast senda til íslands.
svo líta http://www.bmwpartstore.com líka mjög vel út en ég veit ekki hvort þeir sendi til landsins...



