Menn hafa verið að ræða um kostnaðinn af því að smella túbrbínum á vélarnar en kostnaðurinn við það (miðað við reynslu manna) er á bilinu 500-800k, og gæti jafnvel verið meiri. Fyrir flesta er þetta allt of mikið en þá er spurningin hvað annað er hægt að gera til að kreysta auka hestöfl úr vélunum.
Er rétt að setja nýjan loftfilter, stækka pústið, smella kubb í tölvuna, fá nýja kertaþræði, taka 98okt besín eða á maður bara að horfa á þetta klassíska sem er að skipta um olíur, kerti osfrv.
Hvað segið þið meistarar, hvað er best að gera (og er til eitthvað best) og í hvaða röð ætti maður að gera það (ef maður miðar við að byrja á einföldustu og ódýrustu hlutunum).



