Þannig er mál með vexti að felgurnar hjá mér eru orðnar nokkuð sjoppulegar, ég hef ekki fundið neinar sambærilegar felgur til sölu sem ég get keypt notaðar.
Hafa menn reynslu af því að láta mála upp á nýtt eða polyhúða, ég vil helst halda þessum orginal ,,reyk" lit sem er á felgunum, eins og M5 felgurnar eru orginal en hef sterkan grun um að það gerist ekki við svona aðgerð. Ég vil ekki fá einhverja subbulega leka á felgunum,
svo spurningin er einföld: er einhver fær um að framkvæma svona aðgerð hérna á klakanum og hvað er sanngjarnt verð fyrir svona?






