Hvernig í andskotanum fær maður aftursætin í þessum bíl til að leggjast niður, ég veit að það er takki á sætisbakinu en hann er þverari en ég sem skapar ákveðið vandamál. Kannast einhver við svipað vesen eða er það BARA ég sem hefur verið svo heppinn? Á takkinn að fara niður eða upp....vantar að fá bakið til að leggjast fram. Endilega þeir sem þekkja einhver trix láta heyra í sér sem fyrst, klukkan er kortér í hjólsög hérna megin
