Þessi bíll er einnig til sölu (með illt í hjartanu) ef að rétt tilboð fæst í hann.
Um er að ræða ökutækið PO700 sem að er upprunalega 320i, en var síðan swappað M50B25 sem að á 12þús KM fór á hringjum.
Nú er í bílnum M52B25, með FULL M50 conversion, þ.e. intake manifold og OBD I conversion !
Það sem að þarf að gera til þess að koma bílnum á götuna er ýmislegt, í bílnum þarf að ditta eitthvað í hjólabúnaði og setja í hann gírkassa ásamt því að tíma inn VANOS á knastásum, með mótornum fylgja US spec M3 knastásar, en þeir eiga að vera direct fit og gefa einhver hestöfl, gott væri að skipta um þá og tíma inn mótorinn !
Gengið var á bílinn með oddhvössum hlut í fyrra og er verið að vinna í því að fá bílinn málaðan eftir þær skemmdir en tryggingafélagið er að reyna að fyrra sig á því að lakk bílsins hafi verið gamalt

Þetta er í vinnslu hjá lögfræðingi, og lítur vel út svo að sennilegast fæst bíllinn afhentur ný-heilmálaður

Bíllinn er rosalega heilt eintak, og fylgir allt með bílnum nema einhverjar fóðringar til þess að gera hann ökuhæfan.
Ég býð upp á flutning á bílnum hvert sem er (ekki erlendis þó) með í kaupunum
Öllum spurningum skal beint til mín í einkaskilaboðum, en mönnum er frjálst að tjá sig eitthvað í þessum þræði
Þetta er semsagt bíll sem að þarf vinnu og verður því einungis seldur þeim sem að ég treysti fyrir því að klára hann 
Hérna eru myndir sem að fylgja:



Hérna er mynd frá Daníeli (hringdi sérstaklega í hann til að fá að nota myndina) sem að átti bílinn á undan mér:



Og fleiri myndir sem að Daníel tók eftir að bíllinn komst í mínar eigur:




Myndir af mér að drifta, teknar á mína vél en minnir að SteiniB hafi tekið myndirnar án þess að muna það:




Verð: 450þTILBOÐ: 350 ef að hann fer fljótt 