by fart » Mon 29. Dec 2003 21:04
Ég er að grúska í þessu, Það sem ég hef komis tað er að:
Kúplingin fer á svona 40þús km fresti (getur farið á einni spyrnu) þannig að það borgar sig að kaupa auka kúplingu úti.
Þjónsutubókin er algjör lykilatriði (eins og í flestum bílum) en ég held að hún hafi meira vægi í M5. Gírkassinn er hörku öflugur, og því hægt að setja sterkari kúplingu ef maður vill. Annars á ekkert að mæla á móti því að taka mikið keyrðan bíl, svo lengi sem hann hefur verið þjónustaður vel.
Ég er að veðja á að 99 módel af bíl keyrður undir 150þús verði svona 17-18þús € næsta vor. Þá er bara spurning hvernig gengið verður.
Menn á spjallvefum sem eiga M5 E39 eru að kvarta yfir því að þeir bílar séu að falla hratt í verði, og vilja meina að hann eigi eftir að gera það áfram og þá sérstaklega þegar nýja 500 hestafla V10 græjan mætir á svæðið.
þannig að ég sé bjarta tíma framundan.
Targetið verður s.s. helst 00 bíll (facelift) Mit Allem aukahlutum, hörku þjónustubók keyrður slatta og með nýja kúplingu í skottinu.
E36 M3GTtt