Tók út helsta bullið. Fyrsta skipti sem að ég splitta þræði á nýja spjallborðinu þannig að ef ég eyddi óvart einhverju þá biðst ég afsökunar
Og þið sem að VERÐIÐ að bulla vinsamlegast gera það í OT og við skulum reyna að halda
ÖLLU bulli frá tæknilegum umræðum. Þetta á að vera sá partur spjallisin sem á að vera alveg laus við bull.
Ef að menn geta ekki sagt eitthvað af viti þá bara plís sleppa því.
Og svona ON topic þá hefur það komið fram hérna framar í þræðinum að ég nota alltaf sparco hanska uppá braut. Mjög svipaðir þessum:

Það er MEGA þægilegt að nota þetta uppá braut en mér myndi ekki detta í hug að nota þetta dagsdaglega.
Ég er með alcantara stýri og það er þokkalega gott uppá braut en ég verð að viðurkenna að ef maður er bara á rúntinum þá er það ekki það þægilegasta. Sérstaklega ekki þegar það er kannski heitt í bílnum og maður svitnar aðeins í lófunum.
Mig langar helst í svona quick release hub og geta rönnað 2 stýri bara

Vona að þetta hjálpi þér eitthvað.