Ég er búinn að fylgjast aðeins með hérna.
Ég er að sjá það síendurtekið að meðlimir hér sem hafa verið á þessari síðu í að verða nokkur ár eru að gera sig seka um fáranlega stæla, endurtekningar, skot og eyðileggingu á þráðum.
Þá sérstaklega skot á nýja meðlimi sem eru kannski ekki alveg með málin á hreinu.
Sýnist svona á öllu að rótgrónir spjallverjar séu alfarið að sjá um það sjálfir að draga þetta frábæra spjallsvæði á lægra plan.
Taki það til sín sem eiga.
Með bestu kveðju,
Kristján Örvar, Bmw aðdáandi.


