Seinasta fimmtudag byrjaði bíllinn að ganga illa hjá mér yfir 2000rpm og þegar ég tek af stað úr kyrrstæðu.
Einkennin eru á þann veg að bíllinn er máttlausari, titrar, tilfinningin er svolítið eins og það sé verið að drepast á bílnum eða þá eins og ég sé í of þungum gír.....
Ég með minni miklu reynslu af bilanagreiningum fór að kanna málið og hef komist að því að þetta er mun verra þegar bíllinn er orðinn heitur. Og reyndar í dag er þessi tilfinning alltaf, ekki bara yfir 2000rpm.
Ég hafði grun um að þetta hefði með loftflæði að gera, bæði vegna þess að mér finnst ég hafa lesið um svipað dæmi og þá var loftflæði orsökin, og vegna þess að í vikunni þá opnaði ég húddið og sá að k&n sveppurinn sem ég var með var dottinn af og lá á víðavangi í húddinu hjá mér (greinilega mikill kunnáttumaður sem setti hann í).
Ég prófaði að taka k&n sveppinn af og prófaði líka að aftengja loftflæðisskynjarann (held alveg örugglega að þetta hafi verið hann) en það virtist ekki breyta neinu, svo að núna er ég ráðalaus.
Dettur mönnum eitthvað í hug?







