íbbi_ wrote:
ég skrieð einu sinni undir saab 900 sem ég hafði tjakkað upp með hjólatjakk, tjakkurinn gaf sig og bíllinn hlunkaðist niður.. bjargaði því samt að bíllinn fór ekki niðrí gólf heldur hlussaðist á restina af tjakkinu, ég var bókstaflegapikkfastur undir bílnum, en slasaðist ekkert, er hinsvegar BARA fanatískur í að vera með bíla á búkkum og helst dekk líka núna
Pabbi lenti einmitt í því líka að fá Saab 900 ofan á sig einhverntíman, náði reyndar að renna sér undan að mestu en bíllinn lenti ofan á hendinni á honum upp að öxl.
En sennilega hefur eitthvað fleira verið undir bílnum þar sem hendin á honum brotnaði allavega ekki, en hann sat þó fastur og gat lítið gert þar sem þetta var í skemmunni í sveitinni og allir aðrir á kafi í heyskap.
Hann einmitt fer ekki undir bíl núna nema að vera með dekk sitthvorumegin undir sílsunum.