Ég massaði E46 um síðustu helgi með ágætis útkomu, þar á meðal e-r mesta sinaskeiðabólga sem ég hef komist í kynni við.
Ég notaði hinsvegar bónvél, ekki slípirokk og er ekki alveg nógu ánægður með árangurinn. Ég á stillanlegann slípirokk með bónhaus og púða, en hann er þó bara stillanlegur milli 4500-10000rpm, sem mér finnst heldur hratt fyrir mössun. Er ekki venjulega talað um 1800-2000rpm fyrir mössun eða er 4500 í lagi?
Ég ætla sumsé að byrja með grófum massa og taka aðra umferð með fínum, eins og ég gerði síðast.
Öll basic advice eru vel þegin, væri líka gott að fá info um hvaða massa menn eru að nota. Ég keypti 2 týpur af massa í N1 og er ekki alveg nógu sáttur við þá, sérstaklega þar sem að frændi minn var með eldgamlann massa í dollu og notaði á sinn bíl með talsvert betri niðurstöðum, verst bara að ég finn þann massa hvergi.
