bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 07. Jun 2025 21:10

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 19 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: BMW E36
PostPosted: Sun 08. Mar 2009 04:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Posts: 5217
Location: HérogÞarogAllstaðar
Er svona að pæla í að fara að skipta út golfinum fyrir einhvað flottara og skemmtilegra, og dettur helst BMW E36 325i Coupe í hug.

Langaði í smá upplýsingar um þá

Hvernig er að keyra þá á veturna?
Eru þetta góðir bílar?
Bila þeir mikið?
Hver er sirka eyðsla á svona bíl?

_________________
BMW E30 316i 1988

ROCKSTONE DAY PROJECTS ON YOUTUBE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Sun 08. Mar 2009 10:53 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
Þægilegasti BMW'inn í rekstri!
Sennilega sá leiðinlegasti í snjó :D

Þetta er allavega mín reynsla.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Sun 08. Mar 2009 11:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
Ekki er ég búinn að eiga E36 lengi en maður er engastund að falla fyrir þessu.

fallegir og bjóða upp á endalausa möguleika á breytingum 8)

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Sun 08. Mar 2009 12:06 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 26. Sep 2008 17:42
Posts: 390
Þetta er toppurinn á tilverunni. Þegar þú hefur átt svona bíl í viku+ þá finnuru strax vangefinn mun þegar þú sest uppí Golf eða Rollu eða eitthvað, þetta er allt annað tóbak.

Eini "gallinn" við þetta plan hjá þér, er að e36 coupe eru talsvert miikið sjaldgæfari hér á íslandi en venjulegir e36 og svo er enn erfiðara að fá hann 325 bsk. Besta lausnin væri að fara úti eitthvað eins og Jon Ragnar, hann keypti coupe boddý, geðveikt svalt 8) sem var 318is og svo fylgdi með 325 varahlutabíl.

En gangi þér vel með leitina ! :)

_________________
ovlov
BMW e39 523i (Seldur)
Audi S4 Turbo (Seldur)
BMW e34 525ia (Seldur)
e46 318 ci (Seldur)
e36 320 coupe (Seldur)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Sun 08. Mar 2009 13:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
Hvernig er að keyra þá á veturna? algjör snilld, komst allt í snjóþyngstavetrinum í 20 ár, árið 2007
Eru þetta góðir bílar? já, gott að keyra þá og semi öflugir (ég tók þig allavegna GTI golfinn þinn)
Bila þeir mikið? Nei nei.. en gamlir bílar þurfa meira viðhald en nýjir :)
Hver er sirka eyðsla á svona bíl? 12 - 16 lítra á hundraði


fínir bílar en kraftaverk að finna E36 325 coupe á íslandi, það eru sirka 5 svona á landinu

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Sun 08. Mar 2009 14:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
Aron Fridrik wrote:
Hvernig er að keyra þá á veturna? algjör snilld, komst allt í snjóþyngstavetrinum í 20 ár, árið 2007
Eru þetta góðir bílar? já, gott að keyra þá og semi öflugir (ég tók þig allavegna GTI golfinn þinn)
Bila þeir mikið? Nei nei.. en gamlir bílar þurfa meira viðhald en nýjir :)
Hver er sirka eyðsla á svona bíl? 12 - 16 lítra á hundraði


fínir bílar en kraftaverk að finna E36 325 coupe á íslandi, það eru sirka 5 svona á landinu


minn 323 var reyndar með m52 en hann var að fara með 7.5 í langkeyrslu, ég hef verið töluvert mikið á E36 og E46 á misgóðum dekkjum, en ég verð að segja eins og bara með alla rwd bíla að dekkin skipta öllu í hálku og snjó.

ég veit ekki hvort að ég hafi verið svo óheppinn með E36, en það getur myndast alveg ógeðslega leiðinlegt ryð í þeim, myndi passa mig vel að skoða sílsana, undir svarta listanum fyrir neðan framrúðuna og undir teppinu í skottinu.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Sun 08. Mar 2009 14:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
Frábærir bílar, er búinn að eiga minn 323i coupe núna í 6 ár og enn mjög ánægður.

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Sun 08. Mar 2009 14:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Posts: 1834
Location: Rkv
Mér finnst þeir snilld. Endalaust hægt að breyta og fá drasl í þetta, og þeir halda sér alveg ágætlega í úliti.
Ég lít nánast eins á 325 og 323, ekkert rosalegur munur á þeim...nema turbo komi við sögu, þá er 325 betri kostur.

Þetter næsta költið...

_________________
E39M5
A35AMG


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Sun 08. Mar 2009 22:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
Dóri- wrote:
Aron Fridrik wrote:
Hvernig er að keyra þá á veturna? algjör snilld, komst allt í snjóþyngstavetrinum í 20 ár, árið 2007
Eru þetta góðir bílar? já, gott að keyra þá og semi öflugir (ég tók þig allavegna GTI golfinn þinn)
Bila þeir mikið? Nei nei.. en gamlir bílar þurfa meira viðhald en nýjir :)
Hver er sirka eyðsla á svona bíl? 12 - 16 lítra á hundraði


fínir bílar en kraftaverk að finna E36 325 coupe á íslandi, það eru sirka 5 svona á landinu


minn 323 var reyndar með m52 en hann var að fara með 7.5 í langkeyrslu, ég hef verið töluvert mikið á E36 og E46 á misgóðum dekkjum, en ég verð að segja eins og bara með alla rwd bíla að dekkin skipta öllu í hálku og snjó.

ég veit ekki hvort að ég hafi verið svo óheppinn með E36, en það getur myndast alveg ógeðslega leiðinlegt ryð í þeim, myndi passa mig vel að skoða sílsana, undir svarta listanum fyrir neðan framrúðuna og undir teppinu í skottinu.


minn var í svona 8-9 í langkeyrslu.. en ég keyrði ekki það mikið í langkeyrslu :)

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Sun 08. Mar 2009 22:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
jonthor wrote:
Frábærir bílar, er búinn að eiga minn 323i coupe núna í 6 ár og enn mjög ánægður.


Ertu enn í Frakklandi .... ??

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Sun 08. Mar 2009 22:55 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 15. Apr 2005 14:18
Posts: 798
Location: Þorlákshöfn City!
Hvernig er að keyra þá á veturna?

á góðum dekkjum eru þeir bara býsna góðir, en aftur á móti á sumardekkjum eru þeir skelfilegir :lol: :oops:

Eru þetta góðir bílar?
:)

Bila þeir mikið?
fer eftir eintökum og hvort þessi "bilun" sé almennt viðhald eða ekki

Hver er sirka eyðsla á svona bíl?

hjá mér er hann svona 7.5-8 á langkeyrslu, ca 12-13 innanbæjar (hef ekki mælt)

_________________
BMW 330 metch 2002
Bmw e-36 323 coupe - 1997 - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Mon 09. Mar 2009 04:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
átti 318is E36 coupe, ólíkt einsa reynslu þá var minn sá allra duglegasti bmw sem ég hef átt í snjó, læstur að aftan, skítléttur og vel hár, fór fáránlega mikið,

það sem ég tók sérstaklega eftir við hann, var hversu vel ballanceraður hann er í akstri, og hef ég alltaf stefnt á að smíða einhevrn flottan E36c eftir að hafa slædað gamla þvers og kruss í allar beygjur

minn var ekinn 260 þegar ég eignast hann, og rúmlega 270 þegar ég sel, og hann er ennþá á götuni 3árum seinna, og ég held að ég fari með rétt mál að þetta sé einn af fyrstu E36coupe bílunum á klakanum ef ekki sá fyrsti, framleiddur 91 og fluttur inn fyrir sýningu hjá gamla umboðinu,

þeri hafa galla eins og allir bílar, einhver vanhönnun í afturgólfi eðahjólabitafestingum sem veldur töluverðum skaða,
innrétingarnar finnst mér einhverjar þær óvönduðustu sem maður finnur í bmw, hurðaspjöldin í coupe bílunum eru ekkert annað en sorp,

en mér finnst coupe boddýið alveg MEGA fallegt, og E36 alveg þrusubílar i.m.o, dauðlangar í eitt stk

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Mon 09. Mar 2009 09:01 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
Betri á veturna en framhjóaldrifið drasl

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Mon 09. Mar 2009 09:55 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 23. Sep 2005 14:08
Posts: 795
Location: Höfuðborgarsvæðið
Númer 1, 2 og 3 að vera á góðum dekkjum, þá kemstu allt á þessum bílum.

_________________
Danni
Mercedes Benz Viano 2.2cdi 2003 "Langferðabíllinn"
Audi A6 1.8 1999 "garmurinn"
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW E36
PostPosted: Mon 09. Mar 2009 10:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
Alpina wrote:
jonthor wrote:
Frábærir bílar, er búinn að eiga minn 323i coupe núna í 6 ár og enn mjög ánægður.


Ertu enn í Frakklandi .... ??


Hehe, nei. Kláraði námið í lok 2005, flutti þá heim og tók bílinn með aftur heim. Ég er loksins búinn að láta 6 ára gamla "drauminn" rætast og búinn að kaupa M-contour felgur á bílinn. Bíllinn lítur enn svakalega vel út. Ég smelli myndum inn þegar ég gef mér tíma til að taka myndir. Hann stendur núna í 199k svo ég er búinn að keyra hann um 70k frá því að ég keypti hann. Sem þýðir í raun að um 130k af þessum km hafa verði keyrir erlendis af þeim þremur eigendum sem eru að bílnum frá upphafi. Einn í Þýskalandinu og tveir hér.

Í langakstri stendur bíllinn hjá mér í 8L/100, innanbæjar í ~11-13L/100 eftir akstri og veðurfari.

Skemmtilegustu eyðslutölurnar voru samt þegar ég keyrði 1.300 km frá Rotterdam til Grenoble árið 2004. Ég var að keyra á um 140 km/klst (hraðinn á hraðbrautunum í Frakklandi) og bíllinn eyddi 7,9 L/100 á þessari ferð minni.

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 19 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 34 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group