Þetta ætlar ekkert að hætta...
Það sullast olía útum olíukvarðamælingargatið ef ég toga stöngina út á meðan bíllinn er í gangi.
Getur stíflaður hvarfi valdið slíkum "bakþrýsting" eða hvað það kallast? (Er ekki ennþá búinn að fara með hann í púst) eða er þetta meira mál en það, stimpilhringir, heddpakkning?
Svo er hjólalega að framan farin að gefa frá sér óhljóð, er nokkuð voðalegt vesen að skipta um þetta? Fannst þetta líta einfaldara út en ég er vanur, sem þýðir yfirleitt of gott til að vera satt.



