Að sjálfsögðu á hún rétt á bótum

Kærastan mín er búin að vera með bak- og hausverki eftir að hún velti RX8unni minni í fyrrasumar, og fer reglulega til lækna og sjúkraþjálfara, og tryggingarnar endurgreiða það allt jafnóðum. Þú átt rétt þeim endurgreiðslum hvort sem hún úrskurðast öryrki eða ekki. Við leituðum til Óðinns í Fulltingi, þvílíkt almennilegur kall sem fær víða frábær meðmæli.
Taktu saman alla reikninga sem þú átt til um skoðanir og sjúkraþjálfaratíma og farðu með til þeirra sem þú ákveður að leita til, og fáðu það endurgreitt. Svo að ári liðnu frá slysinu fer hún í örorkumat þar sem prósentan er að ég held reiknuð út. Ef þetta eru bara örfáar prósentur kemur þetta ekkert niður á henni í framtíðinni, kemur hvergi fram ef ég man rétt. Síðan eru bæturnar metnar út á þá prósentu sem og atvinnutap.
Ég veit líka til þess að manneskjur sem neyðast til að skipta um vinnur, og fara jafnvel í verr launaðri vinnur fá talsvert hærri bætur en ella, og þá er ég ekki bara að tala um tíkalla, en það fer auðvitað eftir atvikum. Um að gera að fá þetta bætt, nóg borgum við í tryggingar og þú hefur engu að tapa.