Geirinn wrote:
Danni wrote:
Ég fer að fara að kaupa mér sumardekk undir 540, ásamt hvarfakútum. En síðan þarf ég að koma honum í gegnum skoðun sem ætlar að reynast vesen vegna þess að það eru filmur frammí sem mig langar ekki að taka úr, bara ljótt að sjá bíla með filmur afturí en ekki frammí
Svo þegar það fer að koma sól og gott veður ætla ég að keyra Hvalfjörðinn og aðrar leiðir sem er örugglega skemmtilegt að keyra á góðum bílum

En ég mun ekki komast á bíladaga vegna vinnu, það finnst mér mesti bömmerinn

Er lögbundið að vera með fram-hliðarrúður yfir höfuð ?
Tekurðu þær ekki bara úr ? Eða öryggið fyrir rúðumótorinn ?
Ég var að lesa yfir reglugerðina um búnað ökutækja og þó að ég fór ekki ítarlega í gegnum þetta allt þá las ég um útsýni og þar kemur hvergi fram að það þurfi að vera rúður til staðar, að utan framrúðu. En það er tekið fram að ef rúðan sé til staðar þurfi að vera úr réttu gleri og skoðunarmaður þarf að geta séð merkingarnar, þannig það dugar ekki að taka öryggið úr heldur þarf að taka rúðurnar úr.
Ég mund pottþétt láta taka filmurnar úr vegna þess að þetta er bara of mikið vesen fyrir eitthvað sem gerir ekkert fyrir bílinn nema bæta útlitið.
En nóg um það. Það fer að styttast í sumarið og ég get ekki beðið mig hlakkar svo til að keyra í góða veðrinu

Ég er búinn að komast að því að það er mikið skemmtilegra að taka langa rúnta út á land á E39 540 en að finna eitthvað plan og fara að spóla.