Ég átti þennan frábær bíll eyðir mjög litlu góður í snjó.
Og já ! ég málaði rendurnar á húddið bara vegna þess að mig langaði til þess
Ég fékk allstaðar jákvæð viðbrögð við þessum röndum þetta þótt flott og mjög djarft að þora að setja svona Camaro rendur á BMW

ég ætlaði að mála toppinn svartan líka en ég bara gaf mér aldrei tíma í það.
Ég massaði allan bílinn upp en hann var hálf appelsínugulur þegar að ég eignaðist hann
Það kom stundum lykt úr miðstöðinni og mun það trúlega vera frá frjókornasíunni, það stóð alltaf til hjá mér að skipta um hana en ég kom því ekki aldrei í verk
Svo keypti ég blæjubílinn og þá var þessi seldur
Bílasölumynd af honum áður en að ég eignaðist hann
Sölumyndir frá mér
http://bringatrailer.com/wp-content/upl ... ront_1.jpg
Þarna átti ég eftir að mála húddið og bílinn er svoldið skítugur.
Það var talsvert vesin að fá húdd á hann enda höfðu ekki margir svona coupe verið rifnir á þessum tíma.
Svo á ég tjóna myndirnar frá vís en ég tel það nú ekki viðeigandi að birta þær hér
