IvanAnders wrote:
Engar áhyggjur, Íslendingar munu kjósa yfir sig sjálfstæðisflokkinn eins og alltaf!!
Quote:
Þetta er opinberun Jóhannesar Georgs, sem réttu nafni heitir Johanes George Lee og er skoskur sjáandi sem hefur séð
marga atburði fyrir, t.d. forsetakjör Obama, skógareldana í Ástralíu, og
efnahagshrunið á Íslandi.
Hér á eftir er lausleg þýðing úr ensku á sýn hans á framtíð Íslands á næstu
árum.
2009: Forsætisráðherra nýju ríkisstjórnarinnar, Jóhanna, er heiðarleg og dugleg, en
því miður fær ríkkistjórn hennar fáu áorkað til góðs. Orsök þess er mikil
ringulreið og óeining í þinginu og stjórnkerfinu. Fátt gengur í haginn. Það
tekst að koma Davíð úr Seðlabankanum og skipa einn Seðlabankastjóra, en það
breytir litlu um efnahagsöngþveitið. Atvinnuleysi eykst, fólk missir eignir
sínar. Þúsundir fólks flytja úr landi á þessu ári, mest til Noregs og Kanada, en
einnig til fleiri landa.
Seinast í Apríl verða kosningar til þings. Nokkur ný framboð taka þátt í kosningum, en ekkert þeirra fær mann á þing, heldur taka þau
fylgi frá Samfylkingu og Vinstri grænum. Framsóknarflokkurinn vinnur góðan
kosningasigur og Sjálfstæðisflokkurinn fær frekar slaka útkomu. Þessir flokkar
fá nauman meirihluta saman, og mynda ríkisstjórn að loknum kosningum, við lítinn
fögnuð þjóðarinnar. Verðbólga minnkar á fyrri hluta ársins, en stígur í yfir 30%
í árslok 2009.
2010: Skelfilegt ár. Ríkisstjórn sjálfstæðis/Framsóknar, umsnýr öllu sem fyrri
ríkisstjórnin gerði. Allar stöður eru pólitíkst skipaðar samkv.
helmingaskiptareglu flokkanna. Verðbólga nær 50% Eini atvinnuvegurinn sem
blómgast sem aldrei fyrr er dópsala. Atvinnuleysi nálgast 20%. Glæpaalda gengur
yfir höfuðborgarsvæðið. 20.000 manns flytja úr landi, aðallega af
höfuðborgarsvæðinu. Samt er ástandið betra í sumum landshlutum, þar er þokkalegt
atvinnustig, og minni glæpir og eiturlyf. Dæmi um slíka staði eru:
Vestmannaeyjar, Hornafjörður, Dalabyggð. Snæfellsnes, Vopnafjörður. Fólk sækir á
alla þessa staði úr eymdinni og glæpunum á Höfuðborgarsvæðinu. Hjónaskilnaðir
slá öll met.
2011: Miklar óeirðir í landinu. Byggingar og jafnvel heilu hverfin brennd í þessum
óeirðum. Lögreglan ræður ekki við neitt, þótt hún sé nú öll búin skotvopnum.
Útgöngubann í Reykjavík. Atvinnuleysi og þjóðargjaldþrot blasir við.
Ríkisstjórnin er óstarfhæf. Daglegir götubardagar á seinni hluta ársins. Fengin
óeirðalögregla búin vopnum frá Danmörku til að stilla til friðar, en það hjálpar
lítið. 20.000 manns flytja úr landi.
2012: Olíuleit norðaustan við Ísland. Miklar vonir bundnar við hana. Annars flest í
ólesti. Vopnuð átök í Reykjavík. Jarðskjálfti gengur yfir Selfoss og Hveragerði
og veldur miklum skemmdum. 25.000 flytja úr landi.
2013: Niðurstöður olíuleitar valda vonbrigðum. Ekki hagkvæmt að vinna olíu, amk. miðað við nútíma tækni. Ísland er endanlega lýst gjaldþrota. Evran kostar
2000 krónur. 150% verðbólga. 20.000 flytja úr landi.
2014: Ísland óskar eftir aðild að Evrópusambandinu EU. En þessari umsókn er hafnað í
Brussel. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur við stjórn landsins, ríkisstjórn og
forseti eru rekin úr störfum, og þingið leyst upp. Í lok ársins, taka Bandaríki
Norður Ameríku USA. Við stjórn Íslands í umboði Alþjóðabankans. Obama forseti
USA, er á þessum tíma kominn á kjörtímabil nr. 2. Það gekk vel að komast út ur
kreppunni í USA. Staða Íslands undir stjórn USA, verður svipuð og staða Puerto
Rico. Sem sagt öll stjórn frá Whasington, en bæjar og sveitarstjórnum verður
leyft að starfa, undir ströngu eftirliti.
Á þessum tíma er íbúafjöldi Reykjavíkur um 50.000, og alls landsins um 200.000 í stað 320.000, árið 2008. Þriðjungur þjóðarinnar er
fluttur úr landi