Jæja
Kominn í lag! Kíkti í kvöld aftur í skúrinn til að skoða þetta betur. Fór yfirhersluna á heddinu og skoða olíuna... leit ekkert svakalega vel út ... smá slykkja í olíunni og og sumstaðar litlar vatnsperlur
Jæja allavega þegar ég var að klára loka ventlalokinu kíktu Atli og Aron Jarl í skúrinn og við tókum svolítinn rúnt um hverfið. Setti í gang og ekkert óeðlilegur reykur aftan úr ... tókum svo nokkur rönn þarna á tómum vegi og allt leit þetta ósköð vel út fyrir utan að miðstöðin var köld.
Kíktum svo aftur í skúrinn, staðan á forðabúrinu óbreytt og ákváðum svo að mögulega væri loft í hitalelementinu þannig að bíllinn var tjakkaður upp að framan og kom eitthvað af loftbólum upp í forðabúrinu og lækkaði svolítið í því um leið. Kom smá velgja þá í miðstöðina og fórum þá að spá í slöngunum í inn og út rörin fyrir elementið á hvalbaknum... Fór og skoðuðum í Touringinum hans Arons og sáum að þetta var víxlað hjá mér
Ég tengdi þetta rétt til að byrja með en af því það kom bara kalt loft fyrst(væntanlega verið loft þarna inni þá) og víxlaði.
Reykurinn og skýið hefur líklega verið vatn og olíudrullu innan í pústinu sem hefur komist þangað á meðan hin pakkningin var í rusli enda var pollur inní cyl 4
slykkjan í olíunni og vatnsperlurnar skýrast þannig að þetta hefur verið afgangur af gömlu olíunn sem var blönduð með kælivökva og bensíni.
Ég er alveg bara sáttur núna ... búinn að vera heví fúll í dag útaf þessu veseni.
Allt að looka vel og gerir það vonandi áfram núna *fingers crossed*