Zyklus wrote:
Kreppan er að dýpka skuggalega hratt út í heimi.
Landsframleiðsla í Japan dróst t.d. um 12,7% á 4. ársfjórðungi seinasta árs miðað við sama ársfjórðung árið áður.
Landsframleiðsla í Taiwan dróst saman um yfir 8% á 4. ársfjórðungi seinasta árs miðað við sama ársfjórðung árið áður.
Landsframleiðsla í Lettlandi dróst saman um yfir 10% á 4. ársfjórðungi seinasta árs miðað við sama ársfjórðung árið áður.
Austur-Evrópa er í mjög slæmum málum og gæti valdið því að evrópska bankakerfið hrynji.
Og svona má lengi telja.
Þetta eru mjög slæm tíðindi fyrir okkur Íslendinga því það sem átti að bjarga okkur var útflutningurinn en það sér það hver heilvita maður að eftir því sem kreppan dýpkar erlendis þá lækkar verð á okkar útflutningi.
Sem sagt, eftir því sem kreppan dýpkar erlendis því dýpri verður hún hér.
Við skulum því vona okkar vegna að heimskreppan verði ekki mjög djúp þó ástandið gefi nú lítið tilefni til bjartsýni.
Annars held ég að spár um 10% samdrátt hérlendis séu ansi mikil bjartsýni.
Byggingarstarfsemi og fjármálastarfsemi voru samtals um 40% af landsframleiðslu árið 2007 og nú eru þessir geirar bara brotabrot af því sem þeir voru.
Hagvöxtur undanfarinna ára var að mikli leyti „plathagvöxtur“, þ.e.a.s. hagvöxturinn var drifin áfram af ódýru lánsfé sem enginn aðgangur er að lengur og var lánsféð að miklu leyti notað til að fjármagna neyslu og byggingu húsnæðis sem mun ekki skila neinum tekjum í framtíðinni.
Ég held því að samdrátturinn verði dýpri en 10% eins og margir spá, líklegast 15-20%.
Við sjáum það bara að nú þegar eru um 15.500 manns skráð á atvinnuleysisskrá og kreppan rétt að byrja.
Það er satt að það verður auðvitað erfiðara fyrir Ísland bæði að koma vörum í verð og fá gott verð við þessar aðstæður. En það verður samt eiginlega ekki hjá því litið að við þessar aðstæður sem nú eru að skapast munu tollamúrar rísa á ný og efnahagsleg eða köld stríð eru líkleg þegar hin ýmsu þjóðlönd reyna að glíma við fallandi landsframleiðslu, aukið atvinnuleysi og rótleysi sinna þegna. Lausnin er iðulega sú sama, þjappa þegnunum saman á móti sameiginlegum óvin.
Ísland hinsvegar hefur sögulega verið mitt á milli í þesskonar heimi og gæti vel farið svo á ný. Með öðrum orðum, þá verður líklega hvergi betra að vera en einmitt á Íslandi ef að allt er á leið í niðurfallið.