Ég er nokkuð viss um að ég ætli að eiga þennan gullmola áfram og er farinn að skoða áhugaverðar breytingar fyrir sumarið. Ætla að pósta lista hérna, endilega segið mér hvað ykkur finnst - eða hvort það er eitthvað sem ég ætti að bæta á listann.

--
LED Afturljós
Núverandi afturljós eru eitthvað sprungin eftir veturinn. Ég hef lengi haft augastað á LED afturljósum eins og þessum:
Nú er þetta svartur bíll. Haldið þið að þetta væri flottara að kaupa shadow útgáfuna? Persónulega hallast ég meira að henni, en ég veit einusinni ekki hvort þetta sé leyfilegt hér á landi.
--
Angel Eyes og surtun
Það segja mér margir að ég eigi að losa mig við allt króm af bílnum. Að vissu leyti er ég sammála þeim, en mér finnst krómlínurnar við rúðurnar gefa bílnum ákveðið útlit sem ég er mjög hrifinn af. Hinsvegar hefði ég ekkert á móti því að sverta nýrun. En hvað finnst ykkur? Það mætti kalla það hálf-klárað verk að taka bara 'helminginn' af króminu, jafnvel tilgangslaust?
Síðan er bílinn með xenon ljós, en gular parkperur. Auðvitað væri mikið einfaldara að skipta þeim út setja bláar í staðinn, en mig langar virkilega í angel eyes - þau gera alveg ótrúlega mikið fyrir heildarútlitið.
--
M3 Framstuðari
Sumum finnst það silly að setja M3 framstuðara á non-M bíla, en ég fíla það í tætlur. Ég pantaði einn síðasta haust, en komst svo að því hvað það var skuggalega dýrt að flytja hann til landsins þannig ég ákvað að geyma hann úti aðeins lengur.

Ef allt gengur upp, þá kemur hann til landsins í sumar.
--
Lip- og roof spoiler
Ég keypti lip spoiler á E46 sem ég átti á undan þessum og ég var virkilega sáttur með hann. Ódýr og gerði
mjög mikið fyrir útlit bílsins. Hef alltaf verið hrifinn af lip + roof spoiler combó, svo lengi sem það fari ekki út í öfga. M-style lip spoiler og ACS roof spoiler er að mínu mati mjög flott combó, en þeir eru ekki ófáir sem vilja ekki sjá roof-spoilerinn.
--
Filmur
Mér finnst það gera mikið fyrir suma bíla að láta filma þá. Sérstaklega á svörtum og þá fá krómlistarnir líka að njóta sín mun betur. Hinsvegar búum við á Íslandi og hér eru bjánaleg lög sem banna það að framrúður séu filmaðar. Persónulega finnst mér það ekki borga sig að filma þessar örsmáu afturrúður á þessum bíl, sérstaklega útaf því að mér finnst það varla passa (sérstaklega þar sem það er ekkert sem aðskilur fram- og afturrúðurnar í þessum bíl). Ég föndraði smá í photoshop til að sjá hvernig þetta gæti komið út hjá mér og ég var ekki sáttur með niðurstöðurnar. Vitið þið um E46 coupé sem var filmaður svona og hvernig það kom út?
--
Þetta eru svona helstu útlitsbreytingar sem ég er tilbúinn að fara í. Þetta er ekkert pottþéttur listi, hann kemur líklegast til með að breytast.
Það er eitt sem mig langar þó að gera við þennan bíl - lækka hann og gera stífari. Mér finnst hann of 'mjúkur'. En ég veit afar lítið um svona hluti og vil því ekki fara í eitthvað sem ég hef ekki græna glóru um. Ég vil að hlutirnir séu gerðir vel og allt sé pottþétt. Hvað er ég að horfa á dýran pakka og hvar get ég frætt mig um þetta?

Endilega hendið á mig commentum um listann og segið mér hvað þið mynduð gera, væri þetta ykkar bíll!
Kv, Steini.