Verður ekki svikinn ef þú dettur inná gott eintak af E39
Lenti í furðulegri tilvistarkreppu um daginn...
Keyri minn bíl daglega og keyrði hann 15.000km síðastliðið ár....
Keyrði hann um 15km, labbaði svo útúr honum og beint inní E60...
Keyrði þann bíl um það bil 30 km og varð alveg drullusvekktur útí bílinn minn, fannst bara í annari vídd hvað það var mikið betra að keyra E60 bílinn
Samt var E60 bíllinn keyrður rúmlega tvöfalt meira en E39 minn
Kom svo til baka með tárin í augunum, settist uppí minn bíl og keyrði af stað...
Þá fattaði ég að bíllinn minn var (að mínu mati) EKKERT síðri en E60 í akstri, ég get eiginlega ómögulega útskýrt þetta!!!
Það eru líka ýmsir hlutir við E60 innréttinguna sem pirra mig
Hehe, en nóg OT
Gangi þér vel að finna GÓÐAN E39
