Fyrir þá sem lesa ekki aðra spjallþræði
Þetta er 1997 árgerð af Nissan skyline R33 spec 2 type M
í þessari sjálfhliðarrennireið er mótor sem heitir RB25DET og er hangandi utaná honum Holset HX 35 túrbína sem er upplunalega úr 2004 árgerð af Dodge Ram dísel pickup.
Það sem búið er að gera við þennan bíl er eftirfarandi.
Fjöðrun: Stífur frá Tein, Orginal struttar frá Nissan bæði frammí og afturí, HKS coilover kerfi sem er stillanlegt bæði á hæð og stífleika.
Boddí: Boddíið er að öllu leiti original nema það að ég tók 2 kg úr stuðaranum til að koma front mount intercooler fyrir.
Vél: Vélin er 2500cc línu 6. Original með T28 túrbínu var vélin að skila frá framleiðanda 255 hp. Nú er komin stærri túrbína, Sérsmíðaðar flækjur, kevlar tímareim fá Nismo, Vatnsdæla frá Nismo,
Front mount intercooler. Calsonic (sem er Nissan tuner í japan) Vatnskassi, Tial 38 mm wastegate og Vems standalone tölva sem gefur mér gríðarlega möguleika í að stjórna núverandi og framtíðar íhlutum vélarinnar.
Það sem er i vinnslu þessa stundina er soggrein og downpipe frá túrbínu.
Öryggisbúnaður. Ég er enþá með orginal stóla, belti, stýri og ekkert búr. Breyting verður líklegast á þessu eftir næsta sumar ef vel gengur.
Ég treysti mér ekki til að gefa upp framtíðar hestaflatölu núna því ég veit í raun og veru ekki hvernig þetta verður þegar bíllinn fer í gang aftur.
Hér á eftir læt ég fylgja nokkrar myndir úr ferlinu á frá því ég byrjaði að breyta og hvernig hann er í dag.
Gamla skítuga og nýja bling bling
Túrbínan komin í eftir mjög mikið af blóði svita og tári.
Soggreinin komin í tölvutækt
Bara að ýta á enter.
Fór og gíraði og græjaði í morgun.
Soggreinin var tekin fyrir í dag og ég kláraði botnplötuna og var búinn að saga allt efni niður í þessa grein.
Hér er botnplatan á tölvutæku með rönnerum í.
Fyrir nokkru síðan reif ég gömlu af
Og bjó til þetta snilldar mót.
Í morgun byrjaði ég svo á botnplötunni.
Ýtti á enter og þá fór allt að gerast.
Stage one complete
Stage two it´s a go!
Farin að koma mynd á þetta.
Platan tilbúin undir Rönnera.
Prestó! Platan tilbúin til að fara í suðu á mánudaginn og sjóða lokið á svo
ég geti farið að klára dæmið. Ætla að smíða eitthvað sniðugt á morgun líka.