Spurningakeppni BMWKrafts 14. febrúar!

Hvenær er næsta samkoma? Allt um það hér.

Spurningakeppni BMWKrafts 14. febrúar!

Postby iar » Thu 05. Feb 2009 21:49

Sælt veri fólkið!

(vissara að hafa þessa tilkynningu líka hér undir Samkomur ef svo ólíklega vildi til að tilkynningin undir Almennar umræður hafi farið framhjá einhverjum.. :-) )

Spurningakeppni BMWKrafts verður haldin 14. febrúar!
Húsið opnar klukkan 19:30 og við stefnum á að byrja keppnina um 20:00 :)

Þetta verður haldið í aðstöðu Kvartmíluklúbbsins við Kvartmílubrautina í Hafnarfirði. Við þökkum þeim kærlega fyrir að bjóða okkur aðstöðuna þeirra.

Þeir sem ætla að taka með sér öl verða að muna að redda sér fari :D


Er ekki annars stemning fyrir þessu? :-)

Fyrir þá sem ekki kannast við þetta þá hefur spurningakeppnin verið haldin tvisvar áður og er þemað ... BMW ... (surprise!). Semsagt allt tengt BMW, BMWKrafti og jafnvel eitthvað smá af öðru... t.d. mótorsporti.

Keppt verður í fjögurra manna liðum og það má skipuleggja liðin áður (það verður semsagt ekki dregið í lið á staðnum! nú er um að gera fyrir félagana að hópa sig saman, skúraliðin o.fl. og hefja strangar æfingar ;-) ) en það er samt í fínu lagi þó fólk sé ekki í neinum ákveðnum liðum þegar á staðinn er komið þá verða þau bara búin til á staðnum.

Nánari upplýsingar um staðsetningu eru komnar hér fyrir ofan.

Og aðeins til að hita fólk upp þá eru hér nokkrar spurningar síðan í fyrra:

- Hvað er BMW Isetta 300 fljótur upp í 100 km/klst?

- Hvað heitir vélin í 740i árgerð 1997?

- Hvað er tegundarheiti Z8 ?

- Hvaða fræga leikkona lék í BMW stuttmyndinni “Star” ?
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Re: Spurningakeppni BMWKrafts 14. febrúar!

Postby eiddz » Fri 06. Feb 2009 00:04

iar wrote:Þetta verður haldið í aðstöðu Kvartmíluklúbbsins við Kvartmílubrautina í Hafnarfirði. Við þökkum þeim kærlega fyrir að bjóða okkur aðstöðuna þeirra.




Nánari upplýsingar um staðsetningu verða auglýstar seinna.



:roll:
Kveðja, Eiður
8665409

BMW E30 325i '87 [FCKJDM]
BMW E30 300i '87

Image
eiddz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 956
Joined: Wed 07. Jun 2006 01:11

Re: Spurningakeppni BMWKrafts 14. febrúar!

Postby arnibjorn » Fri 06. Feb 2009 00:21

eiddz wrote:
iar wrote:Þetta verður haldið í aðstöðu Kvartmíluklúbbsins við Kvartmílubrautina í Hafnarfirði. Við þökkum þeim kærlega fyrir að bjóða okkur aðstöðuna þeirra.




Nánari upplýsingar um staðsetningu verða auglýstar seinna.



:roll:


Slaaaakur að quote-a í Ingimar og breyta textanum!! :o :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city


Return to Samkomur

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 1 guest