Vildi bara leyfa ykkur að sjá hvernig það fer með lítinn saklausan subaru justy að lenda í ripper á veghefli.
Ég var á leiðinni í vinnuna í morgun og þessi veghefill var búinn að vera í smá stund á undan mér, svo allt í einu stoppar hann og ég líka. Það dugir ekki til og hann bakkar á mig og þar með festist ripperinn í húddinu hjá mér, svo beygir hann aðeins þannig að bíllinn hjá mér snýst og bílstjórahurðin lendir á afturdekkinu hjá honum og rúðan smallast yfir mig. Síðan keyrir hann áfram og dregur mig með og tekur ekki eftir neinu fyrr en annar bílstjóri hoppar út og veifar í hann og þá var ég búinn að dragast ca. 10-15 metra með, hafði legið á flautunni allann tíman en það dugði lítið. Enda finnur 22 tonna hefill lítið fyrir 700kg justy




