Hann segir að þetta sé leki/smit útfrá pakkdós aftast í kassanum, ég veit lítið sem EKKERT um þetta því ég skoðaði þetta ekki sjálfur, þeir gátu ekki sett hann uppá lyftu þegar ég náði í bílinn.
Þeir sögðust ætla að gera þetta fyrir mig næsta þriðjudag og þetta væri í kringum 15-20Þúsund (EF ÞAÐ VÆRI BARA ÞETTA AÐ). Þetta er toyota verkstæði sem ég hef alltaf farið með alla bílana mína í smurningu þarna en þegar það kemur að svona þá er mér ekkert vel við það þó þetta séu fagmenn.
Getur einhver hérna með lyftu og þekkingu sem getur gert þetta fyrir mig fyrir minna eða svipað verð, skipta um eina pakkdós og setja olíu á kassa+drif
Einkapóstur nægir.
Takk kærlega




