Ég ætla líka að mæla með Mark Evens þáttunum ....is born
http://en.wikipedia.org/wiki/Mark_Evans_(TV_Host)
Finnst mjög gaman að þáttunum hanns, áhugaverðir og hann sjálfur er svo skemmtilegur.
Svo fannst mér svo skemmtilegt að sjá í fyrstu séríunum kunni hann voða lítið sjálfur og var mikið að læra á móti því að í seinni seríum er hann orðinn meira pro.
--
Campervan Crisis Promo Video
Campervan Crisis
Fín þáttaröð þar sem venjulegur bloke gerir upp VW Campervan í vægast sagt mjög slæmu ástandi.
Svo eru líka til Beetle Crisis og Kit Car Crisis.
---
Wrecks to Riches:
UK:
Dominic Littlewood er aðalhost og Vicki Butler Henderson (sæta gellan úr 5th gear) er aukahost.
Þau fá fólk sem er að leita að bíl til að leggja inn "pöntun" og þau fara að leita að tjónuðum bíl fyrir lítið sem hægt er að gera við og koma aftur á götuna langt undir markaðsverði. Mjög áhugverðir þættir þótt fáir séu til.
Bílar sem þau hafa t.d. tekið: Vauxhall Speedster, Vauxhall Zafira, Honda Civic, Ford Mondeo, VW Golf convertable, Land Rover og eitthvað meira.
Það snýst allt um það að gera við bílana fyrir sem lægstu fjárhæð, en
samt að passa uppá að quality-ið á viðgerðinni sé sem mest.
-
USA:
Barry White er þekktur þarna fyrir vestan fyrir að gera upp bíla.
Hann er með stórt shop, hann kaupir gamla ameríska kagga og tekur þá alveg í gegn og gerir yfirleitt einhverja super musle dæmi úr því og setur þá á uppboð og reynir að græða, sem gengur misvel.
Og bílarnir eru mjög oft alveg verulega, virkilega flottir.
Það sem ég fíla þarna er bara dude sem er í hálfgerðu braski og vill að bílarnir séu vel gerðir, hver bíll fær alveg nokkrar vikur í vinnslu, á móti öllu stressinu sem er í t.d. Overhaul þar sem nánast 4 gæjar eru að pússa vinstri hliðina á meðan 3 eru að spauta þá hægri og 5 eru að setja vélina ofaní og 4 setja innréttinguna inní bílinn og 8 setja nýju lowprofile dekkin undir og enn fleyri að vinna í hinu og þessu allt á sama tíma.