Jæja, nú vantar mig smá hjálp.
Er með 320D E46 sem ælir miklu magni af olíu út um eða rétt við múffu við hvarfakút, nánast ógangfær fyrir vikið. Menn hafa verið að skjóta á bínu, nánast búinn að útiloka síu þar sem olíumagnið er það mikið.
Nú er ég strand, aldrei heyrt um svona vandamál, myndi þiggja ráð frá vitrari mönnum, öll óþarfa komment afþökkuð.
Ef þetta er bína, er e-r hér sem á notaða fyrir mig eða veit hvar ég gæti nálgast slíka, eða hvort og hvar væri hægt að láta taka hana upp?
Mbk,
Hemmi

afhverju að gera það þegar bínan er í því standi að hægt sé að taka hana upp? kostar meira en helmingi minna að gera það en að kaupa nýja 
