by BMWPOWER » Sun 11. Jan 2009 12:39
keyfti mér E30 320 í parta í IT916, svo þegar ég ætlaði að heyra hljóðið í vélinni, þá bara tók hann ekki við sér, en ég er búinn að komast að því að hún neistar ekki, prófaði að taka kertin af og setja við jörð og engin neisti kom, svo prófaði ég að taka þar sem háspennu keflið tengist kveikjunni og komst að því að háspennukeflið er líklegast ónýtt, en mig langar að láta mæla það og sjá hvort það sé það eða ekki, en hvernig á að mæla það og hvað á það að sýna? og hvað er 320 E30 orginal mörg hp?
Sindri Freyr Pálsson
BMW E30 318 coupe '87 IT 916 seldur
BMW E34 525 sedan '94 PK 885
