Fékk mér þennan flotta upptakara í skúrinn:
Ég sá í Hvalfirðinum síðasta sumar hvað E30 stafjárnið er vel brúklegt sem upptakari og skellti mér á eitt stykki.
Endilega póstið ef þið eruð með einhverja aðra hluti með önnur hlutverk en venjulega. Ég man t.d. eftir að hafa séð felgu á veggnum hjá Sæma sem geymdi garðslönguna.



