Sælir,
Tja, það var í deiglunni alltaf að setja í hann 3.5 eða nýrri 2.5 mótor eða álíka en fór aldrei lengra.
Ég hef búið ansi lengi erlendis og þetta var allt fyrir ansi löngu síðan. Var með bílinn í geymslu mjög lengi, mörg ár hreinlega og nennti því ekki lengur og gaf hann því viðkomandi geymslumanni. Hvað sá gerði við hann hef ég ekki hugmynd um, en grunar að hann hafi aldrei farið með hann lengra en í ruslið, eða parta.
Það brotnaði upprunalega olíupanna í honum í smá torfærum hjá mér og eftir að ég læt skipta um hana, síðar seldi ég þá vél og setti bílinn í geymslu þar sem ég flutti erlendis.
Þetta er nota bene í kringum 1994 líklegast, þannig að ansi langt síðan má segja.
Það er hinsvegar rétt sem Sveinbjörn segir að meiningin var 3.5 og bodíkitt frá einhverjum, mjög subtle en flott, man ekki hvaða hinsvegar. Vorum að skoða þessa bæklinga niðrí kjallara hjá SH í Kópavoginum í gamla daga
Meiningi var að bíllinn yrði ca svona á endanum nema að sjálfsögðu blár:
Hefði verið gaman að koma þessu í verk, en það er ekki allt hægt.
e9 sel ég hinsvegar seint!!
Sakna þessa bíls reyndar ennþá, ótrúlega skemmitlegur og góður bíll og súper afl í þessu, á þeim tíma allavega...Margar mjög góðar minningar samfara þessum tímum og þessum bíl. Fór líka ótrúlega mikið og langt í snjó.
G