20"Tommi wrote:
bebecar......ef þú hefur ekki prófað bílinn þá er nú skoðun þín
um málið ekki byggð á mjög traustum grunni og er varla marktæk.....
Það er náttúrulega ekki rétt og ég get útskýrt það fyrir þér nánar afhverju það er.
Skoðunin ætti sér hinsvegar sterkari undirstöður ef ég hefði prófað bílinn.
Eins og ég sagði hér fyrr þá hef ég prófað marga sambærilega bíla og mikið af nýjum bílum þar á meðal bíla sem sumir telja betri en E39 M5 í því sem hann á að gera og meira að segja sá bíll hafði ekki það sem ég er að leita að í E34 M5.
Þannig að skoðunin er vel marktæk þar sem það er fullt af vísbendingum sem benda í þessa átt (fyrir minn smekk allavega).
Það væri nú aldeilis búið að grafa undan rannsóknarvinnu og vísindum ef ekki mætti draga ályktanir af vísbendingum.
Flestir nýrri bílar hafa þróast í átt til meiri þæginda og meira afls og hið sama á við um E39 M5 sem er þannig orðinn aðgengilegri fyrir fjöldann.
Mjög fáir bílar hafa hinsvegar þróast í átt að hreinræktaðri aksturs upplifun en það er eitthvað sem mér finnst einmitt nóg af í E34 M5 og ég held hreinlega að það séu ekki margir sem mótmæli því.
Þetta snýst þannig séð bara um misjafnan smekk enda hef ég aldrei haldið því fram að afkasta geta E39 M5 væri neitt annað en frábær.
En, ég vonast til að komast í svona bíl innan tíðar. Næst þegar ég verð á landinu þá auglýsi ég eftir sjálfboðaliðum til að leyfa mér að prófa
