Jæja, núna hef ég verið að stúdera bjóra upp á síðkastið. Notað hvert einasta tækifæri sem gefst til að kíkja í ríkið og kaupa hinar og þessar tegundir sem fást hérna á þessu skeri.
Og nú er svolítið athyglisvert komið upp að mínu mati. Af þeim bjórum sem ég hef smakkað að þá hafa Tékkneskir bjórar yfirleitt smakkast mun betur heldur en aðrir bjórar í sama flokki.
Nú hef ég eytt 5 mánuðum í Þýskalandi og smakkaði á þeim tíma marga bjóra, local framleiðslu sem og frá stærri bruggsmiðjum.
Ég fann örfáa sem náðu að slá Tékkunum út í bjórnum.
Kannski er það bara ég og minn smekkur en er Þýskaland kannski ekki fyrirheitna landið hvað varðar bjór?
Eða er ég að rugla, Þýskaland hefur gífurlegt magn af allskonar bjórtegundum og standa höfuð og herðar yfir aðrar þjóðir í vissum gerðum af bjór.
Hvaða skoðun hafið þið, ég er að rugla eða er einhver á sömu skoðun?!?




