bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 07. Jun 2025 14:36

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 38 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 00:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
gunnar wrote:
Eru svo þessar blessuðu túrbínur ekki að fara ansi títt í þessum díselbílum.
Þær eru alla vega ekki að endast neina hundruðir þúsunda kílómetra.

Hvernig er líka með smurningar á bensín vs dísel? Þarf ekki að skipta um fleiri síur og eitthvað pillerí í dísel ?


Enda örugglega fæstir sem fatta að það þarf að kæla túrbínur áður en drepið er á ef að það hefur verið eitthvað álag.

Túrbínan fór í mínum samt :oops:
Var reyndar 15þ krónu viðgerð, ég reif hana úr og setti í sjálfur.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 00:26 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40
Posts: 3976
Ég hef aldrei verið neinn díseláhugamaður....fyrr en ég prófaði 530d

Togið í þessum bílum er algjört rugl, skiptir ekki máli á hvaða snúning þú ert, þetta togar brjálað!

Prufaði 325 um daginn og ég varð bara hálfhræddur um hversu mikið ég þurfti að reva hann til að fá eitthvern kraft úr honum

Án efa eru þessar túrbínur að klikka við og við og það er ekki eins skemmtilegt hljóð í þeim. Ég myndi samt ekki hika við að fá mér annan slíkann

Plús að hann eyðir 10.5 innanbæjar, sem mér þykir ansi gott


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 01:26 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Thu 12. May 2005 12:34
Posts: 1064
Location: Selfoss/Hveró
Ég byrjaði á 525i M50 1992 og sá bíll gat farið vel yfir 20L á grófari innanbæjarkeyrslu og fór niður í 8L á langkeyrslu sem er þokkalegt miðað við aldur.

En núna ákvað ég að fara aðra leið og prufa nýrri og stærri 2003 525D SSK Touring.

Bílinn er að eyða nálægt 14L á selfoss-snattinu en svosem ekki mikið hægt að marka það, þar sem það er búið að vera kallt, færðin hundleiðinleg og ekki gleyma þessum leiðinlegu en samt nauðsynlegu hringtorgum og hraðahindrunum. Og maður fer nánast aldrei yfir 50km/t.

En þegar kemur að langkeyrslu þá liggur hann í 6-6,5L sem er bara helvíti gott.

Togið er algjör draumur og ekki skemmir hljóðið í svona 6 cyl díselrellu þegar hún fær nóg að brenna.

En ég var búinn að heyra þetta með túrbínu vandamálið en sem betur fer var skipt um hana í sumar og bílinn þá ekinn 120þús (135þús núna)

En til að segja satt þá myndi ég taka túrbó díselinn fram yfir bensínhákinn á þessum tíma. Þótt 525D er aðeins 163HP þá er vélin að torka 350NM.

Elska að keyra þennann bíl.

_________________
BMW E34 525i Sedan 1991 *LSD*
BMW E36 320i Touring 1995 .. seldur
BMW E34 520i Touring 1994 .. seldur
BMW E36 320i 1997 Seldur .. í partamat í DK
BMW E39 525D Touring 2003 seldur ... snilldar tæki
BMW E34 525i 1992 seldur með mikilli eftirsjá


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 01:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Fyrir leiktæki: Bensín


Fyrir hlunka: Dísill

Þetta er upp frá Gullinbrú í átt að Höfða á nýjum X5 3l dísil (2.2 tonn)...NUFF SAID!

Image

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 01:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Posts: 6493
Location: Hrafnista
Dísel ekki spurning......Miklu skemtilegri vélar og eyða minna.

_________________
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 08:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Passatinn minn er diesel og kunningi minn á samsvarandi bíl með bensínvél

Minn er að eyða svona 7.5-8 innanbæjar, ssk station keyrður 403þús km.

Kunningi minn er á 2.0 bsk sedan, hann er að eyða 9-10 innanbæjar.

Mér finnst miklu beyra að keyra minn og alger snilld á langkeyrslunni, fullt af togi og mjúk sjálfskipting.

Eldsneytiskostnaður er svona nokkurn veginn jafn ef ég tek bara disel á næstu stöð, allveganna eins og verðið á diesel er orðið. Ef ég tek steinolíu, sem ég hef gert í að verða 3mánuði þá er dæmið allt annað.

Ég er að fara með svona rúmar 6þús kr á mánuði í olíu, hann er að fara með tæpar 10þús kr á sömu keyrslu (700km á mánuði)

Jeppinn og roadsterinn eru svo bensín sem mér finnst betra, þessir disel jeppar eru upp til hópa svo snar máttlausir að það er ekki þorandi að setja á þá steinolíu og hreinlega dýrara að reka.

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 09:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Posts: 2232
Location: ókunnug.
Ég fór af BMW 750i '92 yfir á Benz E320cdi '04 og var bara hissa :shock:

BMW 750i......0-100 km.klst. 7.4 sek
Benz E320cdi 0-100 km.klst. 7.7 sek

BMW 750i ......hámarkshraði 250 km.klst.
Benz E320cdi hámarkshraði 243 km.klst.

BMW 750i .....eyddi ca. 20 L. á 100 km.
Benz E320cdi eyddi ca. 10 L. á 100 km.

Benzinn virkaði MUN aflmeiri í öllum akstri heldur en 300 hestafla V12 BMW-inn, ótrúlegt.

Átti dísil Benzann í ca. 16 mánuði og 23.000 km. og það var EKKERT viðhald á þeim tíma fyrir utan einn brotinn gorm í fram fjöðrun.
Elsneytiskostnaður á 204 hestafla, 500 Nm. og 3.2 lítra Benzann var ca. 16.000 kr á mánuði.
Var mikið að spá í að láta Mr.X kíkja á Benzann, ca. 250 hö. og 600 nm. hefðu komið út úr því.

Eins og ég er orðinn hrifinn af dísilpower er alveg ótrúlegt að ég hafi farið og fengið mér V8 bensín X5 :oops:

Image

Díesel Power for the win :wink:

_________________
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 11:29 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég hef sömuleipis velt þessu mikið fyrir mér (góður þráður :wink: ) og mér sýnist á flestu að það borgi sig frekar að kaupa bensín bíl í nánast öllum tilvikum nema þegar aðstæður krefjast gríðarlegs togs (t.d. til að draga báta o.s.frv.)

Eins og verðið á dísil er í dag þá eiginlega allur eldsneytissparnaðurinn farinn út í veður og vind. Þið sjáið þetta á orkuseturs reiknivélinni. Ef þú ekur 20 þús km á ári á BMW 520i vs 520d þá er mismunurinn aðeins rúmar 26 þúsund krónur dísil bílnum í vil.

Maður fær reyndar ekki verð á nýjum bílum í dag með góðu móti en ég myndi giska á að dísil bíllinn kosti að minnsta kosti hálfri milljón ef ekki milljón meira í kaupum.

Ef við svo förum út í notað þá bætast við spíssar og túrbínur sem geta verið til vandræða og hafa verið til vandræða eftir mikinn aksturs (sem er jú það sem þarf til að reyna að vinna upp einhvern sparnað við reksturinn).

Ég sé ekki í fljótu bragði fyrir mér ástæðu til að kaupa dísil nema hreinlega að maður fíli það að hafa þesskonar afl og það skil ég vel sem rök. Nútíma dísil bílar eru alveg ótrúlegir krúsarar og svo er það auðvitað sálfræðilega þægilegra að fara lengra á taknum og finnast bíllinn vera ódýr á fóðrun þó hann sé það í raun ekki þegar allur kostnaðurinn við hann er tekinn til.

Svo má ekki gleyma fjármagnskostnaði og afföllum sem gera svona hluti enn verri.

Ef dísilolían væri á skynsamlegu verði heima þá liti þetta öðruvísi út.

Allavega, til þess að það borgi sig að kaupa dísil þá verður umræddur bíll að vera ódýrari í viðhaldi til lengri tíma litið og ódýrari í kaupum!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 13:03 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 01. Apr 2008 21:40
Posts: 521
Andrynn wrote:
þótt að diesel bíll eyða minna en sambærilegur bensín bíll, þá er viðhald á Diesel vél meira en á bensín og allir varahlutir dýrari en í bensín vélar,

og eins og verðið er í dag þá þarf diesel bíllinn að eyða svo mikið minna til að það borgi sig að vera á Diesel bíl.

ef ég væri að fara ða kaupa mér bíl núna, þá myndi ég kaupa mér bensín.....


Ég verð að vera ósammála þessu með að þær bili meira.
og það sé meira viðhald er bara mjög svipað ég er búin að eiga diesel bíl núna í rúm 2 ár og viðhaldskostnaður á mótor er ekki svo mikill.
málið er að það er miklu léttara að tossa það að viðhalda bensín vél .
skipta um kerti og þræði og annað eins, sem á að gerast miklu oftar en fólk gerir. og síur og olíur á diesel er bara jafn dýrt og annað.

Ég kemst af með að smyrja jeppan hjá mér fyrir 7000kr núna seinast og það fara 9L af olíu á hann í hvert skipti.

_________________
Sævar M

Stoltur meðlimur í TURBO-CREW

Toyota Avensis 2004
Jeep Willys 383 torfærutæki
KFX450R heavy modded 8)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 13:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Manni sýnist á öllu að þetta sé einfaldlega ekki spurning um sparnað. Alla vega ekki hjá kraftsmönnum á BMW, þetta sé frekar bara spurning um að menn fíli dísel faktorinn. Togið og jafna powerbandið.

Mig hefur alla vega lengi langað í dísel BMW, en það sem hefur hrætt mig aðallega frá því er hár rekstrarkostnaður. Mér finnst ég alltaf vera sjá þræði í tæknilegar umræður þar sem eitthvað vesen er á til dæmis 320d bílunum. Skynjarar, túrbínur, spíssar og annað.

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 15:37 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Posts: 3836
Location: Vík í Mýrdal
Ég hafi aldrei mikla trú á dísel fyrr en ég eignaðist E39 520d

Fínn kraftur og mjög gott tog
En eyðslan var alveg rugl lítil....


Þessi mynd var tekin á sauðárkróki, eftir að hafa keyrt alla leið frá selfossi þar sem tankurinn var fylltur (um 400km.)
Og það liðu nokkrir dagar þangað til að Range talan byrjaði að telja niður (fer ekki hærra en 999)

Image

(btw ég var alla leiðina á 100-110kmh)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 18:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
Ég hef ekkert getað ekið 530d síðan að Doddi_Kef keyrði hann í köku, en er búinn að vera á 750 og 740 til skiptis og það virðist vera hagstæðara að reka þá... allavega einsog staðan er í dag :lol:

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 18:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
Steini B wrote:
En eyðslan var alveg rugl lítil....


Ef að þér finnst þetta rugl lítil eyðsla, þá má alveg geta þess að á leiðinni frá Akureyri með "Mr.X" þá sýndi eyðslutölvan 3,9-4,1 til skiptis....

Það fannst mér auðvitað rugl lítið, en hann er í kringum 8 lítrana innanbæjar..

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2008 22:53 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Posts: 1210
Location: Keflavík south
Angelic0- wrote:
Ég hef ekkert getað ekið 530d síðan að Doddi_Kef keyrði hann í köku, en er búinn að vera á 750 og 740 til skiptis og það virðist vera hagstæðara að reka þá... allavega einsog staðan er í dag :lol:


Þóttist hafa séð hann standa í grófinni,, hvað kom fyrir?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 24. Dec 2008 03:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ég var ofboðslega hrifinn af þessum nýmóðins diesel bílum frá þjóðverjandmu, svo keypti nákominn aðili sér 320d, sem kostaði hann svo þvílíkar upphæðir í viðhaldi, eða í raunini í leit af bilun frekar að manni varð hálf óglatt, en jæja sumir bílar eru mánudags, annar félagi minn keypti svo 320d bíl hérna á kraftinum, sem fór að ganga illa, og upphæðirnar sem fóru í að finna út hvað var að í B&L og TB voru skuggalegar, og aldrei batnaði helvs bíllinn,

svo fékk ég lánaðann 520d í smá tíma , og hann var með hvert mótortengt vesenið á fætur öðru,

svo finnst mér frekar leiðinlega stór hluti þeirra sem ég þekki sem hafa verið á þeim, lent í að þurfa skipta um túrbínu, og annað henni tengt,

engu síður finnst mér flestir dieselarnir virkilega skemmtilegir, ég hef samt ekki góða reynslu af þeim viðhaldslega, en er að sjálfsögðu til í að gefa þeim sjensa þangað ég skipti um skoðun,


æeg hef hinsvegar séð benz diesel vélar ganga ótrúlega lengi,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 38 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group