Ég er með x5 2002 ekinn 130þ. og hann er farinn að ganga illa.
Það kveiknuðu gul ljós í mælaborðinu um daginn: EML, guli þríhyrninigurinn í miðjunni, abs ljósið og bremsudiskaljósið. En bíllinn var síðan eðlilegur næst þegar ég kveikti á honum. En svo kveiknuðu þessi ljós reglulega.
Fór síðan með bílinn í B&L og það var lesin tölvan í honum. B&L sérfræðingurinn sagði að það væri gat á þessari lofthosu og ég þyrfti að skipta um hana. Ég keypti hana en er ekki búinn að geta skipt um hana.
Síðan versnaði bíllinn núna á föstudaginn, ég hélt að það væri bara útaf því að það var svo kalt. En síðan var hann allveg hrikalegur í gær, gékk varla hægagang, drap á sér og þvílíkur truntugangur og svo kviknaði gult ljós með tannhjóli(sem þýðir að sjálfskiptingin er farin í eitthvað emergency mode).
Mig vantar einhver til að kíkja á þetta og skipta um þessa hosu.

