halldór frændi hekla who? það eru nú 16ár síðan þessi gripur rann út úr heklu
gripurinn er með hinni alræmdu 3.0l v6 , ég bjóst við sirka 20l í venjulegum akstri, en hann mældi hann svo í rúmlega 15.5 áðan, og er nú hálf hissa, diesel bíllinn er nú ekki langt undir því, og hellings verðmunur á diesel/bensín, ég verð alveg sáttur við hann meðan hann hengur undir 20l,
annars er ég ótrúlega hress með hann bara, kostaði skít á priki, er 92 árg og það virkar allt í honum, og ekkert virðist vera bilað.. hitinn í sætunum, stillanlega fjöðrunin,loftkælingin og allar rafmagnsrúður í lagi,
svo er bara ólýsanlega þægilegra að vera ekki með lífið í lúkunum yfir hurðadældum og rispum á þessum tíma, og þurfa ekki að spá í hálku og kantsteinum,
varðandi bekkinn,. þá er hann með tvö sæti aftast sem er hægt að hengja upp til hliðanna, annars eru sæti og glasabakkar fyrir 7 manns
