E34 fer ekki í gang

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

E34 fer ekki í gang

Postby sosupabbi » Wed 17. Dec 2008 18:30

Hann byrjaði á því að vera leiðinlegur i gang einn morguninn, startaði einu sinni og hann snéri bara svo startaði eg aftur þá fór hann í gang en drap strax á sér, svo fór hann í gang í þriðja(steig á bensíngjöfina), prufaði svo að drepa á honum og hann rauk bara eðlilega í gang.
Svo skrepp ég niðrí vöku og drep á honum þar og hann ríkur eðlilega i gang(var ekkert mjög lengi).
Bíð svo í 2 tíma og þá fer hann ekki i gang, snýr bara og snýr og snýr, pústar ekkert. Er þetta ekki bara bensíndælan? get ég skipt um hana sjálfur eða þarf ég að fara með hann á verkstæði? hvar er hún líka staðsett?
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Postby dropitsiggz » Wed 17. Dec 2008 18:45

Getur alveg skipt um bensíndæluna sjálfur, ég gerði það um dagin og það var bara ekkert mál, hún er í skottinu hægra megin undir teppinu og er þar svart lok með 6 skrúfum í og skrúfar það upp og eitthvað svona framvegis, man það ekki alveg
dropitsiggz
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 390
Joined: Mon 17. Mar 2008 02:11
Location: Kópavogur

Postby sosupabbi » Wed 17. Dec 2008 18:49

mig grunaði það, en er þetta alveg öruglega bensíndælan? nenni nu ekki að skipta um hana ef þetta er svo ekkert hún :oops:
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests