Var að skipta um drif í bimmanum mínum um daginn, E34 525i bsk. með ABS
Og hef lent í því núna undanfarið að ABSið dettur út þegar ég set hann i gang og oft dugar bara að drepa á honum og setja í gang aftur.
Drifið sem ég setti í hann er úr 518i e34 og sá bíll var ekki með ABS, gæti það tengst þessu eitthvað eða er þetta bara skítugir ABS nemar?
Einnig þegar ABSið er virkt þá kemur þegar ég er að bremsa niður og er alveg að stoppa þá kemur ABS smá inn, þó svo það sé ekki hálka. Gerist bara stundum.
En svo þegar ég er búinn að keyra í smástund þá helst ABSið oftast alveg inni og hegðar sér eins og það á að gera.
BTW þá byrjaði þetta að gerast eftir að ég skipti um drif.
Setti 4,27 drif í stað 3,73.
Með von um góð svör, Kv. Axel Jóhann.



