Svona bæði og. Það eru mörg önnur lönd með svona endurgreiðslu reglur. Ef eitthvað er þá kannski kemur einhver ný dínamík í markaðinn. Flytja út eitthvað af þessum Q7, Cayenne og RR og fá eitthvað spennandi í staðinn (það gerist náttúrulega ekki undir núverandi kringumstæðum samt). En fyrir þá sem að eru ekki fjárþurfi, þá er þetta kannski ágætis leið til að selja bíl fyrir annan jafnvel í skiptum, t.d. eitthvað klassískt sem er á góðum verðum núna og mun auðvitað hækka einhvern tímann aftur. Þá ættu semsagt evrurnar að "núlla" út greiðslurnar af hækkandi innflutningsgjöldunum heima.
Þú hlýtur að vera í kjör stöðu með G-wagninn til að nýta þér gengið. EF það er eitthvað hér heima sem þig langar í t.d. annar bíll eða sumarbústaður eða eitthvað á líka þá er um að gera að athuga þetta. Ef ekki þá er bara að hanga á honum enda súper flottur bíll.
EN, svo má ekki gleyma því að markaðurinn hér úti er á hraðri niðurleið og það er bara tímaspursmál hvenær það verður ómögulegt að fá eitthvað af viti fyrir svona bíla hérna úti (Q7, Cayenne og RR þ.e.a.s.). Í Noregi eru líklegast bestu möguleikarnir á að selja þetta enn sem komið er.
_________________ Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
|