by bebecar » Fri 05. Dec 2003 09:18
Þetta verður mjög forvitnileg samkeppni. Hingað til hefur verið til verðjöfnunarsjóður sem hefur séð til þess að Skeljungur og Olís hafa greitt niður bensínverð hjá Esso vegna þess að þeir eru með fleiri stöðvar úti á landi.
Ef að Atlantsolía opnar afgreiðslustöð og verður með lægra verð (sem ég reyndar efast um að verði lægra en hjá Orkunni þar sem þeir segjast alltaf vera ódýrastir) hvað gerist þá?
Forsendur verðjöfnunarsjóðs hljóta að vera brostnar þar sem samkeppnin er í Reykjavík en Atlantsolía bara með stöðvar á höfuðborgarsvæðinu - til þess að bregðast við samkeppninni þá yrðu hin olíufélögin þrjú að lækka verð á höfuðborgarsvæðinu, landsbyggðin myndi sitja eftir.
Ef að verðjöfnunarsjóður hverfur úr dæminu þá myndum við sjá mjög breytt dæmi.
Í fyrsta lagi myndi Essó loka flestum sínum Bensínstöðvum úti á landi vegna þess að þær eru ekki lengur niðurgreiddar af hinum olíufélögunum (mig minnir að þetta séu um 700 milljóna sjóður árlega). Skeljungur myndi bjóða lægsta verðið í Reykjavík því þeir eru með aðaláherslu á höfuðborgarsvæðið. Olís yrði mitt á milli.
Niðurstaðan yrði sú að Bensínverð yrði lægst í Reykjavík og dýrara úti á landi eftir því hve óhagstæð staðsetning og sölumöguleikar eru.
Það sem við erum því að horfa uppá núna eru lok verðjöfnunar sem auðvitað er þáttur samkeppnisleysis - einmitt vegna þess að olífélögin hafa að sínu mati orðið að reka saman stöðvar eða skipta svæðum á milli sín til að veita þjónustu og til að geta boðið sama verð allstaðar.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road