Það eru ákveðin bílavandræði í gangi
Bíllinn fær ekki rétt magn af bensíni og missir kraft undir álagi.
Ég hélt fyrst að það væri bensíndælan og keypti orginal nýja og setti hana í......það var ekki hún!
Las af honum og það er villa á loftflæðimælinn, fékk að prófa annan og það breytti engu.
Svo er villa á súrefnisskynjarann en ég vissi það, hann var ónýtur og er ótengdur. En bíllinn var samt mjög góður án hans í upphafi.
Varð fyrst var við þetta þegar ég missti afl á um 170km hraða á A3, bíllinn drap svo á sér. Fór svo í gang eftir nokkurn tíma og ég komst áfram.
Bara slæmt að vera svona úti í kanti á hraðbraut.
Þurfti að fara sendiferð í dag og tók bara bílaleigubíl til öryggis, það er ekki svo dýrt.
Kostaði 3500 dagurinn og fékk Toyota Auris Diesel. Fínasti bíll, keyrði hann 500km og skilaði honum svo. Þrælvirkar en eyðir miklu fannst mér, fór með 10l/100km en ég keyrði líka hratt.
Samt bara svipað og BITTE sem er 15 ára gamall og ekki með Euro4 eða neitt slíkt!
Er á bílnum núna með loftflæðiskynjarann ótengdan, þá gefur tölvan bara ákveðið fast magn af bensíni. Bíllinn er keyranlegur en hvorki skemmtilegur né áreiðanlegur.
Kem heim í næstu viku og þarf lítið að keyra í viðbót þannig ég ætla að klára ferðina með bílinn svona og kaupa þetta svo nýtt næst þegar ég kem og klára að laga þetta.
Leiðinlegt en samt 6.000 farsælir km að baki
