http://www.visir.is/article/20081211/FRETTIR01/711493193/-1
Hvað eru 100 millz milli vina?
visir.is wrote:
Grunur um 100 milljóna fjárdrátt - Skilanefnd Landsbankans kærir háttsettan bankamann
„Það hefur komið hingað eitt mál frá skilanefnd, sem varðar fjárdrátt, ég get staðfest það. Málið er í rannsókn," segir Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjórans. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst, varðar málið staka færslu upp á um 100 milljónir króna. Færslan fór milli reikninga, þar sem annar reikningurinn var í eigu erlends félags.
Skilanefnd Landsbankans komst að þessu og kærði til efnahagsbrotadeildarinnar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þá var hinn grunaði hátt settur starfsmaður bankans, þó ekki bankastjóri.
Millifærslan mun hafa verið gerð skömmu eftir að bankinn féll, fyrir miðjan október. Skilanefnd var sett yfir bankann 7. október.
Málið var svo sent frá skilanefndinni til efnahagsbrotadeildarinnar fyrir rúmum hálfum mánuði.
Fréttablaðið náði ekki tali af Lárusi Finnbogasyni, formanni skilanefndar Landsbankans, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. - ikh