Mazi! wrote:
SteiniDJ wrote:
Eggert wrote:
1. Passa sig að klikka ekki á hvað sem er.
2. Læra að setja Windows upp á tölvuna til að geta gert það reglulega og þegar eitthvað fer úrskeiðis. Gott að gera þetta 2x á ári, tekur tvo tíma tops í senn.
Ég hef komist af án vírusvarna síðan ég fór að nota tölvur á unglingsárunum. Þetta er bara drasl sem hægir á vélinni og er bara fyrir að mínu mati. Færi aldrei að borga fyrir svona rusl sem er búið til af sömu mönnum og gera vírusana!
Ég er ekki viss með þetta. En það er svipað hér, ég hef lítið notað vírusvarnir í gegnum árin með góðum árangri. Hinsvegar setti ég upp NOD32 útaf trójuhestum sem stela lykilorðum og þannig gúdderí, vil helst ekki lenda í því. Hann er að éta heil 7 mb af minni í venjulegri notkun og það verður að teljast lítið. Hann er aldrei fyrir mér og ég sé ekki eftir því að hafa sett hann upp.
En með smá skynsemi er auðveldlega hægt að lifa af með engri vírusvörn. Það er bara verst að meirihluti tölvunotenda skortir skynsemi þegar það kemur að tölvum.

mikið til í þessu,
ég nota ekki eina vírus vörn né eldveggi eða neitt, maður þarf bara að vita hvað maður er að gera til þess, reyndar er ég crazy tölvunörd beint á eftir BMW áhuganaum

Tek undir með þér Mázi . .
Annars skemmtilegt sem að ég lenti í varðandi vírusvarnir . .
Ég ætlaði að prufa voðalega sniðuga vörn sem að einhver benti mér á fyrir ekki svo löngu og ég sótti hana á torrenz.com
Svo þegar að ég var að setja hana upp þá bara fór hvarf bakgrunnsmyndin og breyttist í "you are infected" og það poppuðu upp einhverjir fáránlegir gluggar út um allt í anda msn gluggana og svo fóru bara möppur að opnast og lokast og þetta var orðið heljarinnar sýning bara á 20 sekóntum . . Svo var auðvitað bara farið í restart og system restore og allt var í góðu

. .
Annars þá mæli ég með Avira AntiVir
http://www.free-av.com/
Þetta er ókeypis vörn og hefur verið í heimilistölvunni hérna í nokkra mánuði alveg án vandræða . . .
Reglulegt scan . .
tölvan verður ekki hæg ..
engar auglýsingar eða vitleysa sem fylgir þessu.
svo ef að þú villt komast í kynni við þinn innra nörd þá mæli ég með Linux
