Hvað er sanngjörn leiga fyrir skúr sem er 32 fermetrar, með köldu og heitu vatni, rafmagni, hurðaropnara og 2 stæðum fyrir framan.
Ég er að fara að flytja eftir áramót og ætla sennilegast að leigja íbúðina mína og skúrinn út.
Þetta er ágætis skúr, gott pláss fyrir framan og aftan bílinn þegar hann er kominn inn. Ég er meira að segja með hillur fyrir framan bílinn og til hliðar og samt ágætis pláss. Vaskur og borð er í skúrnum. Gluggar alla hliðina að ofan öðru megin svo það er fín birta líka.
Ég var að spá í að leigja þetta út með hita og rafmagni.
Hvað er sanngjarn prís fyrir leigu á svona?




