by Svessi » Thu 04. Dec 2008 21:05
Ég ætlaði akkurat að koma inn á þetta með fullnaðarskírteini sem Kwóti nefndi. Ég er samt ekki alveg 100% á því hvernig það er.
En þar sem verið er að ræða þetta hér fannst mér allt í lagi að koma með nokkra punkta:
Ökuskírteinið okkar er EES gerð sem þýðir að öll þau ökuleyfi sem við höfum eru að fullu gild í EES aðildarríkjunum.
Ef þú ætlar að keyra í öðru landi en sem er aðildarríki að EES þá er ágætt að kaupa svokallað Alþjóðlegt ökuskírteini. Kostar 1000kr og þarf að skila inn passamynd og færð það á næstu sýslumannsskrifstofu. Gildir í tvö ár.
Í sambandi við bílaleigur first menn komu inn á þá umræðu hér. Þá er það mjög misjafnt eftir löndum og bílaleigum og svo flokkum á bílaleigunum.
Semsagt flokkur A eða 1 eða echo sem inniheldur Opel Corsa með 1.0 eða Fiat Uno eða álíka er kannski með 20 ára lámark á meðan flokkur F eða 6 eða superlux eða hvaðsvosem þessir flokkar heita sem er kannski með BMW 760iAL eða M.Benz S500 eða álíka getur verið með 30 ára lámark.
Sumsstaðar hef ég séð alveg niður í 18 ára lámark fyrir coke-dollu á hjólum og uppí 35 ára mest fyrir Ferrari 612 eða Bentley Continental eða álíka þar sem maður þarf að borga sumsstaðar uppí 1200 Evrur og stundum meira fyrir sólahringinn. + að þurfa frammvísa 2-3 kreditkortum og sönnunum að þú eigir kortin og þú sért örugglega þú og meira í þeim dúr.
Annars mæli ég með því að menn fari bara á næstu sýslumannsskrifstofu, fíb eða umferðastofu og fái frekari upplýsingar þar. Ég mæli með sýslumannsskrifstofunni í Kópavogi á Dalveginum. Ég hef alltaf fengið mjög þægilega afgreiðslu þar.
Sverrir Már
Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93