Sælir
Ég fékk að vita fáránlegasta kjaftæði í dag
Þrátt fyrir að ég sé búinn að leggja inn plöturnar af mótorhjóli mínu, þá eru þeir enn að rukka fyrir það
Ég fór því upp í tryggingafyrirtækið og spurði hvað málið væri varðandi þetta kjaftæði. Þeir sögðu mér þá að þetta væri nýr tryggingarstuðull hjá þeim að þeir tryggðu s.s allt árið þrátt fyrir innlaggningar og væru þess vegna að bjóða upp á "ódýrari" tryggingar og greiða yrði tryggingar þrátt fyrir innlagningu númera
Sbr. árstrygging upp á 80 þúsund í stað 400. Hinsvegar með 400 þúsund trygginguna borgar maður bara per mánuð sem maður notar hjólið
Mér finnst þetta fáránlegt system, sérstaklega í ljósi þess að ég er ekki einusinni með bifhjólapróf og því verður það ekkert notað fyrr en næsta sumar
Þannig að ég spyr ykkur bifhjólamenn, hvað gerið þið til að láta ekki taka ykkur í skraufþurran bossalinginn?
Djöfulsins tryggingafélög




