Ætla að koma með eins spurningu hérna þar sem ég er farinn að verða uppiskropa af hugmyndum.
En ég er með M30B35 vél 84' úr e23 sem fer ekki í gang og startið lýsir sér þannig að þegar ég starta heyrir maður að hún sé að þjappa og er eins og hún sé alveg að fara í gang en þá allt í einu er eins og hún hættir að þjappa eins og cutað sé á bensín eða neista, svo ef maður heldur áfram startinu byrjar hún allt í einu aftur að þjappa og endurtekur sig svona en fer aldrei í gang.
Einhver lent í þessu ég er búinn að prufa margt ætla nú ekki að telja það upp hér, en vill endilega fá svör frá ykkur sem hafa verið að skipta þessum vélum úr og í bíla.
Kveðja Hjalti



