Sælir,
Ég er með E36 coupe, 92 árgerð. Og það er eitthvað samlæsingavesen á honum. Þetta lýsir sér svona
- Samlæsingarnar virka ekki neinstaðar.
- Ljósin sem eiga að kviknast á þegar hurð er opnuð, virka ekki. Nema ég kveiki náttúrulega manually á þeim.
- Það eru btw ekki fjarstýrðar samlæsingar á honum.
- Það er þjófarvarnarkerfi i honum, en ég veit ekki hvort það er OEM. Það er svona rautt LED ljós aftanvið gírstöngina, a milli sætishitatakkanna. Og til að taka þjófarvörnina af setur maður svona lítinn og langan kubb ofaná þetta LED ljós, þá er hægt að kveikja á bílnum. Voðalega old school og töff
En já, vandamálið er eins og ég segi að það virkar bara ekkert tengt þessum samlæsingum. Og er þá ekki líklegast að kerfið í heild sinni sé ekki að fá rafmagn? Eða tölvuheilinn sem stjórnar þessu eitthvað vangefinn? Þetta getur varla verið eitthvað sambandsleysi í einstökum skynjurum, þar sem að allt kerfið er lamað.
Any ideas ?
