Sælir, vinur minn á E36 (4 dyra) garm sem er með smá leiðindi.
Hægri framrúða er eitthvað leiðinlegt, upphalarinn fer alltaf í rugl þegar maður skrúfar upp (rafmagnsrúður). Maður þarf að stýra glerinu svo það læsist ekki og mögulega mölvist.
Upphalarinn virðist ekki boginn en það er eins og það sé dáldið slag í honum.
Er þetta stillingar atriði? Þetta er hnoðað í og maður vildi helst losna við að vera skipta um þetta.
Svo er það að það er ekki hægt að læsa bílnum innanfrá í bílstjórasætinu. Allar samlæsingarvirka og hægt er að læsa utanfrá en það virkar ekkert að hreyfa tittinn innan frá upp og niður... bílstjórahurðinn læsist ekki einu sinni.
Einhverjar ábendingar?
