Fór í Vöku áðan....
Sá þar hvítan E32 750iL
Merktur Montana eitthvað aftan á skottlokinu....
Vélin var enn í honum....tékkaði nú ekki með skiptinguna.
Bremsudælur voru að framan líka, sýndist þær nú ekkert vera neinar svaka dælur eins og 750i dælurnar sem ég á
Kannski eru þær önnur týpa?
Eitthvað svart leður var eftir, bílstjórasætið og afturbekkur....
Eitthvað af innréttingardóti horfið....
*Edit*
Ein pæling, mér finnst eins og það sé búið að henda svo mörgum 750i(L) bílum undanfarið árið....
Það voru bara 18 Langir og 18 "stuttir" 750 bílar samkvæmt bifreiðaskrá í fyrra....
Hvað eru eiginlega margir eftir af þessu ennþá í notkun?
