Jæja þá var þessi umræða komin á lakari síður spjallsins og síðasta innlegg frá 2. desember 2008. Ég er ennþá ákveðinn í að fara og þá skiptir engu hvort ég verði búinn að túrbóvæða eður ei.
Vill og ætla mér að fara, þrátt fyrir fjármálakrísu og önnur yfirnáttúruleg fyrirbæri. Ætla að leggja pening inn á Visa-kortið við hver mánaðarmót, engin ósköp í hverjum mánuði en það drepur mig ekki og er gulls virði næsta haust. Sama hvort maður býr á Íslandi eða í Danmörku.
Skil samt að menn séu pínu svartsýnir og haldi að sér höndum

enda er ég alveg hættur að skoða hótel og gistiheimili og ætla bara að tjalda. Þar sparast alveg hellingur og svo er bara drullu-huggulegt að vera í góðum hópi á tjaldsvæði

en ég vildi prófa aftur með þennan þráð og sjá hverjir hefðu enn áhuga. Trúi því ekki að þetta sé ómögulegt ef tveir eru saman í bíl og deila mér sér ferðakostnaði.